Prófkjör í Suðurkjördæmi vegna uppstillingar á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi alþingiskosningar fer fram 11. nóvember næst komandi.
Prófkjörið fer fram samkvæmt 2. gr., a- og b-liðum prófkjörsreglna Sjálfstæðisflokksins þar sem segir:
Þátttaka í prófkjöri er heimil:
- Öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna í kjördæminu sem þar eru búsettir og náð hafa 16 ára aldri prófkjörsdagana.
- Þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarrétt í kjördæminu við kosningarnar og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í kjördæminu fyrir lok kjörfundar.
Á heimsíðu Sjálfstæðisflokksins er að finna nánari upplýsingar um prófkjörið.
Þar er einnig hægt að ganga í flokkinn.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 29.9.2006 | 21:18 (breytt 16.10.2006 kl. 21:51) | Facebook